Leita

Fornleifaskólinn var settur á stofn árið 1997, og hefur verið starfræktur á hverju sumri síðan þá. Hlutverk skólans er að auka þekkingu íslenskra og erlendra nemenda á íslenskri fornleifafræði. Nemendur, hvaðanæva úr heiminum hafa tekið þátt í námskeiðum skólans þar sem þeim eru kennd undirstöðuatriði íslenskrar fornleifafræði.  Skólinn er starfar í 4 vikur á hverju sumri og fá nemendur þjálfun í uppgrefti og fornleifaskráningu en einnig er kennt með fyrirlestrum, málstofum og verklegum tímum í umsjá fornleifafræðinga og annarra vísindamanna. Þátttakendur í fornleifaskólanum þurfa að hafa hafið nám í fornleifafræði og einnig er æskilegt að áhugasvið þeirra tengist íslenskri fornleifafræði, eða fornleifafræði Norður- Atlantshafssins.

Fornleifaskólanum er stjórnað af Karen Milek (Fornleifastofnun Íslands/University of Aberdeen).  Hann er rekinn af Fornleifastofnun í samstarfi við NABO og Senter for studier i vikingtid og nordiske middelalder, Oslo Universitet.

Nánari upplýsingar fást hjá Karen Milek:  k.milek@abdn.ac.uk.

Fornleifaskólinn er 10 eininga námskeið í fornleifafræði við Háskóla Íslands (sjá námskeiðslýsingu). 

Aðgangstakmarkanir eru í námskeiðið og þurfa nemendur við HÍ sem vilja taka það að senda skriflega umsókn ásamt ferilsskrá (CV) til Orra Vésteinssonar (orri@hi.is) fyrir 30. apríl 2010.

Ýmsar upplýsingar má nálgast hér að neðan, allar á ensku:

Field school circular 2010

Student manual 2006

Archaeology at Europe´s edge

Archaeological field manual



 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is