Leita

kálgarður kk.

[skilgr.] Afgirt svæði eða gerði, stungið upp og borið á, þar sem matjurtir voru ræktaðar, t.d. kartöflur og rófur.

[skýr.] Kálgarðar urðu ekki reglulega algengir á Íslandi fyrr en á 19. öld. Frumkvöðull í íslenskri kálgarðarækt var Gísli Magnússon, kallaður Vísi-Gísli, sýslumaður í Rangárvallsýslu á 17. öld.

[enska] vegetable patch

kirkjugarður kk.

[skilgr.] Kristinn grafreitur, oftast girtur af, yfirleitt umhverfis bænhús eða kirkju. [enska] christian cemetery

klaustur

[skilgr.] Bygging sem hýsir samfélag nunna eða munka undir forystu abbadísar eða ábóta. 

[skýr.] Nokkur klaustur voru á Íslandi í kaþólskum sið, t.d. á Þingeyrum, Skriðuklaustri og Kirkjubæjarklaustri.

[enska] monastery, convent

kláfferja kv.

[sh.] kláfur, dráttur

[skilgr.] Ferja þar sem kláfur er notaður til að flytja fólk yfir stór vatnsföll.

[skýr.] Kaðlar eða vírar voru strengdir yfir vatnsfallið, yfirleitt þar sem skemmst vegalengd var milli bakka. Á þeim lék kláfurinn, trékassi, og var dreginn yfir.

kláfur, dráttur

sjá kláfferja

kléberg hk.

[skilgr.] Mjúkur og auðunninn nytjasteinn, samheiti fyrir fjölmörg mismunandi bergtegundaafbrigði.

[skýr.] Kléberg finnst ekki á Íslandi en var algeng innflutningsvara og finnst oft við fornleifauppgrefti, aðallega í lögum frá fyrstu öldum byggðar. Yfirleitt er talið að það hafi verið flutt inn frá Noregi eða Grænlandi, enda algengt á báðum stöðum. Kléberg var eftirsótt hráefni. Úr því voru gerð ílát, allt frá litlum bollum upp í stórar grýtur. Kléberg er eldfast og þolir mikinn hita, bergið er fitukennt og það má auðveldlega rispa með nögl. Kristján Eldjárn endurvakti orðið kléberg í íslenskri tungu en fram til þess hafði það verið kallað tálgusteinn líkt og fjölmargar aðrar mjúkar steintegundir. [enska] soapstone, steatite

kljásteinn  kk.

[sh.] kljágrjót, klé, kljár
[
skilgr.
] Kljásteinn er steinn til að hengja neðan í uppistöðu í vef og halda henni strengdri.
[skýr.] Kljásteinar geta verið með ýmsu móti, náttúrulegir steinar sem gat hefur verið gert í gegnum eða jafnvel náttúrulega gataðir steinar. Kljásteinar finnast stundum margir saman í uppgröftum og er það yfirleitt talin vísbending um að þar hafi staðið vefstaður.

[enska] loom weight

klömbruhnaus kk.
[skilgr.] Klömbruhnaus er ákveðin tegund af torfhnaus sem stunginn er til að hlaða úr, oft húsveggi. Klömbruhnausar eru fleyglaga og lögunum raðað skáhallt á víxl þannig að þeir mynda e.k. fiskibeinamynstur. Milli laga var oft haft eitt lag af streng.

[skýr.]  Klömbruhnaus mun einnig hafa verið nefndur hnakkakökkur.
[enska] slanted turf block

kol (náttúruleg kol, steinkol) hk.

[skilgr.] Fast eldsneyti úr ummynduðum plöntuleifum.  Í náttúrunni verða kol til úr jurtaleifum sem setjast til í mýrum og fenjum og ná ekki að rotna nema að takmörkuðu leyti sökum súrefnisfirrðar. Jurtaleifarnar lenda smám saman undir fargi jarðlaga og umbreytast á löngum tíma í kol. Kol innihalda mikið af kolefni og eru fyrirtaks eldsneyti.

[skýr.] Kol finnast ekki í jörðu á Íslandi. Mór er í raun fyrsta stig kolamyndunar með um 60% kolefnisinnihald og surtarbrandur kemst enn nær því að vera kol með um 70% kolefni. Á Íslandi var stunduð kolagerð, sumstaðar allt fram til upphafs 20. aldar. Kolin voru gerð úr kurluðu birki eða rekavið og nefndust viðarkol.

[enska] coal

kolagerð kv.
[
skilgr.] Sú athöfn að búa til viðarkol.
[skýr.] Venjulega var talað um að gera til kola. Viður, oftast birki en stundum fjalldrapi eða rekaviður, var höggvinn og kurlaður, síðan settur í þar til gerða kolagröf. Þá var eldur borinn að en gröfin síðan byrgð með torfi. Þannig hélst glóð í kurlinu og var látin krauma í þrjá til fjóra daga. Afurðin var viðarkol.

            [enska] charcoal making

kolagröf kv.

[skilgr.] Gryfja sem gert er til kola í.

[skýr.] Kolagrafir finnast gjarnan nokkrar saman, oft upp af rekafjörum, á skógi vöxnum svæðum eða þar sem skógur hefur verið. Oft eru það sporöskjulaga eða hringlaga dældir með grónum krögum úr torfi í kring.

[enska] charcoal pit

kopar kk.

[sh.] eir [skilgr.] Rauðbrúnn málmur, frumefni (Cu).

[skýr.] Hann var mikið notaður í skrautmuni og nytjahluti allt frá landnámi. Auðvelt er að móta kopar og bræða hann til að steypa í mót, bræðslumarkið er 1083 C°. Kopar er mjúkur málmur og oft var honum blandað við önnur efni til að herða hann eða breyta eiginleikunum, t.d. tin og blý, sjá nánar koparblanda. Ef kopar kemst í snertingu við raka myndast græn húð á yfirborði hans, spanskgræna.

[enska] copper

koparblanda kv.

[skilgr.] Málmblanda sem hefur kopar að uppistöðu.

[skýr.] Orðið er samheiti fyrir allar koparblöndur, t.d. látún og brons. Tilgangurinn með blöndun var að breyta eiginleikum koparsins, t.d. herða hann, gera hann hentugri til smíða eða jafnvel breyta litnum.

[enska] copper alloy

krafsa kk.

[skilgr.]  Handverkfæri með löngu tréskafti sem notað er í fornleifauppgrefti til að skafa lausum jarðvegi saman í haug.

[skýr.]  Kröfsu er beitt á svipaðan hátt og hrífu.  Verkfærið er þó ekki með tindum heldur járni með breiðu, bogadregnu járnblaði.  Talið er að íslenskir fornleifafræðingar hafi kynnst verkfærinu í Noregi en það mun einnig notað  garðyrkju, vegavinnu og námavinnu.

[enska] krafser

kuml hk.

[skilgr.] Legstaður heiðins manns.

[skýr.] Sjá einnig tvíkuml, kumlateigur, hrosskuml.

[enska] pagan burial

kumlateigur kk.

[skilgr.] Svæði þar sem fleiri en eitt kuml er að finna. Sjá einnig kuml, tvíkuml, hrosskuml.

[skýr.] Nokkrir kumlateigar eru þekktir á Íslandi, þeirra þekktastur líklega á Dalvík. [enska] pagan cemetery

kúpt næla  kv.
[skilgr.] Kúpt næla er ákveðin gerð af nælu frá víkingaöld. Kúptar nælur eru ílangar, oftast gerðar úr tveimur hlutum, 
yfirskildi og undirskildi. Yfirskjöldurinn er kúptur og oftast ríkulega skreyttur
[skýr.
] Kúptar nælur eru algengustu skartgripir sem finnast í kumlum kvenna. Algengt er að þær finnist í pörum, enda hafa þær líklega verið bornar sín hvoru megin á brjósti eða öxlum. Oft voru sörvistölur á bandi milli nælnanna.
[enska] oval brooch

kvars hk.

[skilgr.] Hörð steintegund, hvít eða gráleit með glergljáa, frumsteinn í öllu súru storkubergi og algeng holufylling.

[enska] quartz

kvíahnaus  kk.
[skilgr.
] Kvíahnaus er ákveðin tegund af torfhnaus sem stunginn var til að hlaða úr. Kvíahnausar eru ferkantaðar eða teningslaga torfur.
[enska] turf block

kvíar kv.

[skilgr.] Aðhald eða rétt, torf- eða grjóthlaðin, sem ær voru mjaltaðar í.

[skýr.] Kvíar voru yfirleitt hafðar skammt utan túns eða í túnjaðri. Færikvíar komu til sögunnar á 18. og 19. öld, trégrindur sem voru færðar til í því augnamiði að áburður dreifðist úr skepnunum.

            [enska] milking pen

kyngervi

[skilgr.]  Félagslega mótaður munur milli karla og kvenna sem er til kominn vegna lærðrar hegðunar en á ekkert skylt við líffræðileg kyn. 

[skýr.]  Kyngervi getur verið breytilegt eftir tímabilum eða milli ólíkra menningarhópa svo dæmi séu nefnd.

[enska] gender

kynjafornleifafræði

[skilgr.] Nálgun í fornleifafræði þar sem áhersla er lögð á kyngervi og hvernig það kemur fram í fornleifafræðilegum rannsóknagögnum.

[skýr.]  Í kynjafornleifafræði eru einnig skoðuð tengsl kyngervis við aðra félagslega þætti eins og þjóðfélagsstöðu, aldur, þjóðerni og trú.

            [enska] gender archaeology


 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is