Leita

| Rannsóknir
| Hildur Gestsdóttir

Landnám Íslands, rannsókn á strontíum samsætum í mannabeinum

Landnám Íslands, rannsókn á strontíum samsætum í mannabeinum
Markmið þessa verkefnis er að gera rannsókn á strontíumsamsæta í beinum og tannglerungi beinagrinda úr kumlum og elstu kristnu kirkjugörðunum, til þess að gera grein fyrir hvernig og hversu hratt Ísland var numið.  Þó að magn strontíum í plöntu- og dýravefi breytist miðað við stöðu í fæðukeðjunni, þá breytist hlutfall strontiumsamsæta ekki við meltingu eða tillífun. Strontíumsamsætu hlutfall beina og tanna er þess vegna það sama og er í fæði einstaklinga, sem er svo aftur á móti það sama og er í umhverfi þeirra.  Þar sem glerungur tanna endurnýjast ekki, þá er hlutfall strontíum samsæta í tannglerungi það sama og í því umhverfi sem einstaklingurinn bjó til 6 ára aldurs, þegar tannglerungur hefur myndast að mestu. Hins vegar heldur endurnýjun beinvefja áfram alla ævi, og því endurspeglar hlutfall strontíum samsæta í beinum það umhverfi sem einstaklingurinn var í síðustu ár ævinnar. 

Vegna þess hve Ísland er jarðfræðilega ungt, þá er hlutfall strontíumsamsæta í bergi mjög lágt samanborið við fornt berg í Norður Evrópu. Því ættu allir innflytjendur frá Norður Evrópu að vera með mun hærri hlutfall strontíum samsæta en þeir sem hafa vaxið úr grasi hér á landi, og því ætti að vera hægt að bera kennsl á innflytjendur með því að rannsaka strontíum samsætur úr tönnum íslenskra beinagrinda sem fundist hafa við fornleifarannsóknir.  Einnig er hægt að bera saman strontíum hlutföll beina og tanna einstaklinga til að draga ályktanir um fólksflutinga innanlands.

Nú þegar hafa sýni verið tekin úr 90 beinagrindum, bæði úr kumlum og elstu kristnu kirkjugörðunum, og af þeim eru að minsta kosti níu einstaklingar sem ekki eru fæddir á Íslands.  Nú hefur vinna hafist við að rannsaka hvaðan þeir komu, og hafist samstarf við fólk sem er að vinna samsæturannsóknir á Grænlandi, Bretlandi, Danmörku og Noregi.

Stjórnendur verkefnis
Dr. T. Douglas Price, University of Wisconsin, Madison
Hildur Gestsdóttir, Fornleifastofnun Íslands

Styrktaraðilar
Verkefnið hefur verið stutt af National Science Foundation (NSF) & Rannsóknarmiðstöð Íslands (RANNÍS)

Heimildir
Hildur Gestsdóttir & T.Douglas Price. 2003. The settlement of Iceland: A preliminary analysis of strontium isotopes in human remains. (skýrslur Fornleifastofnunnar Íslands: FS202-03061. Fjölrit; Reykjavík).
Price, TD & Gestsdóttir, H. (í vinnslu). The first settlers. (sent Antiquity, júlí 2004)



 © FSÍ
Bárugötu 3, 101 Reykjavík l tel: +354-5511033 l fax: +354-5511047 l  fsi@instarch.is